Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 577/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 577/2022

Fimmtudaginn 2. febrúar 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 8. desember 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. desember 2022, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. júlí 2022 og var umsóknin samþykkt 26. júlí sama ár. Þann 24. október 2022 var kærandi boðuð á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem fara ætti fram á tímabilinu 31. október til 4. nóvember og 7. til 9. nóvember 2022. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt á boðað námskeið. Skýringar bárust frá kæranda 5. desember 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. desember 2022, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þegar ákvörðun í máli kæranda var tekin var fulltrúa stofnunarinnar ekki ljóst að skýringar höfðu þegar borist frá kæranda. Mál hennar var því tekið til endurumfjöllunar. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. desember 2022, var kæranda tilkynnt að skýringar hennar hefðu ekki verið metnar gildar og því væri fyrri ákvörðun staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. desember 2022. Með bréfi, dags. 15. desember 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. janúar 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. janúar 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að tölvan hennar hafi bilað og því hafi hún ekki getað opna námskeiðið Stökkpallur. Kærandi hafi reynt að hafa samband við námskeiðshaldara en henni hafi ekki borist svar. Tölva kæranda hafi reynst biluð og því hafi þurft að hreinsa hana. Í kjölfarið hafi fulltrúi Vinnumálastofnunar á Akranesi sagt að kæranda hafi borist smáskilaboð en skilaboðin hafi ekki borist henni. Eftir athugun kæranda hjá símafyrirtæki sínu hafi niðurstaðan verið sú að smáskilaboð frá Vinnumálastofnun hafi ekki borist í símanúmer hennar.

Að mati kæranda séu viðurlögin harkalegar aðgerðir þar sem hún hafi sinnt öllu sem hún hafi verið boðuð í af hálfu Vinnumálastofnunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 18. júlí 2022. Með erindi, dags. 26. júlí 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Kærandi hafi verið skráð á námskeiðið Stökkpallur þann 6. október 2022, en umrætt námskeið hafi verið auglýst á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Námskeiðið hafi verið haldið á tímabilinu 21. október til 4. nóvember og 7. til 9. nóvember 2022. Kæranda hafi verið gefnar upplýsingar með smáskilaboðum og í tölvupósti um á hvaða dögum námskeiðið færi fram. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að mætingarskylda væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar til Vinnumálastofnunar.

Þann 26. október 2022 hafi kærandi verið minnt á að hún hefði ekki enn staðfest þátttöku á námskeiðið og jafnframt hafi verið ítrekað að námskeiðið myndi hefjast mánudaginn 31. október 2022 klukkan 8:30. Kæranda hafi verið bent á að staðfesta þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Jafnframt hafi verið send ítrekun á kæranda þann 31. október 2022, eða sama dag og námskeiðið hafi hafist og tekið fram að næsti tími væri daginn eftir, þ.e. þann 1. nóvember 2022.

Þann 9. nóvember 2022 hafi Vinnumálastofnun borist tilkynning um að mæting kæranda á námskeiðið hafi verið ófullnægjandi. Kærandi hafi ekki staðfest þátttöku á umrætt námskeið og hafi því aldrei mætt. Engin forföll hefðu verið boðuð til Vinnumálastofnunar. Kæranda hafi í kjölfarið verið boðið að skila skriflegum skýringum á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt framangreinda daga á umrætt námskeið með erindi, dags. 25. nóvember 2022.

Engar skýringar hafi borist frá kæranda. Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 6. desember 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta væri felldur niður frá og með 6. desember 2022 í tvo mánuði. Framangreind ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hafi sent tölvupóst á Greiðslustofu Vinnumálastofnunar þann 5. desember 2022 og fært fram skýringar á fjarveru sinni á umrætt námskeið. Þegar ákvörðun í máli kæranda hafi verið tekin þann 6. desember 2022, hafi fulltrúa stofnunarinnar ekki verið það ljóst að skýringar hefðu þegar borist frá kæranda. Málið hafi verið endurskoðað þann 7. desember 2022, með tilliti til skýringa kæranda. Skýringar kæranda vegna fjarveru á námskeiðið hafi ekki verið metnar gildar og því hafi fyrri ákvörðun verið staðfest.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 8. desember 2022. Skýringar kæranda í kæru séu efnislega samhljóða þeim sem hún hafi veitt Vinnumálastofnun. Kærandi greini meðal annars frá því að hún hafi verið í vandræðum með tölvu sína og síma þegar námskeiðið hafi farið fram. Þá segi kærandi að hún hafi hvorki orðið vör við smáskilaboð né tölvupóst frá Vinnumálastofnun fyrr en daginn sem námskeiðið hafi farið fram.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Í 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Í a-lið 1. mgr. 13. gr. sé kveðið á um það skilyrði að atvinnuleitandi skuli vera í virkri atvinnuleit. Samkvæmt h-lið 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun bjóði upp á. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Atvinnuleitendum beri samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. sömu greinar, þar á meðal um tilfallandi veikindi og fjarveru á boðaðan fund, án ástæðulausrar tafar. Kærandi hafi í skýringum sínum, bæði til Vinnumálastofnunar og í kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar, greint frá því að tölva hennar hafi ekki getað opnað fyrir námskeiðið og hafi sýnt svartan skjá þegar hún hafi reynt að komast inn á námskeiðið inni á forritinu Teams. Kærandi greini frá því að hafa reynt að hafa samband við námskeiðshaldara en hafi ekki fengið svar. Kærandi segi að tölva hennar hafi verið full af vírusum og myndavélin hafi ekki virkað. Kærandi segi einnig að smáskilaboð til hennar hafi ekki borist henni.

Vinnumálastofnun hafi aflað upplýsinga hjá námskeiðshaldara um hvort einhver samskipti hefðu átt sér stað á milli þeirra og kæranda. Í svari námskeiðshaldara komi fram að þeir hafi leitað í textaskilaboðum og tölvupósthólfi en finni ekki skilaboð frá kæranda og muni ekki eftir neinum samskiptum. Þó útiloki þeir ekki að símtal hafi átt sér stað á milli þeirra og kæranda en þeir finni þó ekki upplýsingar um það. 

Ljóst sé af ákvæði 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að atvinnuleitandi beri tilkynningarskyldu gagnvart Vinnumálastofnun. Það sé forsenda þess að stofnunin geti sinnt eftirlitshlutverki sínu.

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé fjallað um þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé hafnað. Í 1. mgr. 58. gr. segi orðrétt:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fyrir liggi að kærandi hafi verið skráð á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar. Stofnunin hafi ítrekað minnt kæranda á að staðfesta þátttöku sína á umrætt námskeið ásamt því að ítreka að skyldumæting væri á umrætt námskeið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar til Vinnumálastofnunar. Kæranda hafi, bæði með tölvupósti og í smáskilaboðum, verið gefnar upplýsingar um á hvaða dögum námskeiðið væri haldið. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að mætingarskylda væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar til Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi verið minnt á það þann 26. október 2022 að hún hefði ekki enn staðfest þátttöku á námskeiðið og jafnframt hafi verið ítrekað að námskeiðið myndi hefjast mánudaginn 31. október 2022 klukkan 8:30. Ítrekun hafi einnig verið send á kæranda þann 31. október 2022, þ.e. sama dag og námskeiðið hafi hafist, og tekið fram að næsti tími væri daginn eftir, eða þann 1. nóvember 2022. Stofnunin telji að kæranda hafi verið í lófa lagið að upplýsa stofnunina um forföll með einhverjum hætti, enda hafi kærandi fengið ítrekaðar upplýsingar um að henni bæri að staðfesta þátttöku sína og að um væri að ræða skyldumætingu sem og að forföll þyrfti að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Þessar upplýsingar hafi borist kæranda, bæði í gegnum smáskilaboð í uppgefið símanúmer kæranda og með tölvupósti.

Skylda hvíli á atvinnuleitendum að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem standi þeim til boða í atvinnuleit sinni. Að mati Vinnumálastofnunar séu skýringar kæranda á ástæðum þess að hún hafi verið fjarverandi á umrætt námskeið ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Afstaða Vinnumálastofnunar sé sú að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að þær skýringar sem kærandi hafi gefið vegna fjarveru sinnar á umrætt námskeið geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Niðurstaða Vinnumálastofnunar sé sú að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun stofnunarinnar um að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var skráð á fjarnámskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem var haldið á tímabilinu 31. október til 4. nóvember og 7. til 9. nóvember 2022. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Kærandi var jafnframt tvívegis minnt á námskeiðið, eða þann 26. og 31. október 2022. Kærandi hefur borið því við að tölva hennar hafi bilað og því hafi hún ekki getað tekið þátt í námskeiðinu. Kærandi hafi reynt að hafa samband við námskeiðshaldara vegna þessa en hafi ekki fengið neitt svar. Vinnumálastofnun hefur vísað til þess að stofnunin hafi aflað upplýsinga hjá námskeiðshaldara um hvort samskipti hafi átt sér stað á milli þeirra og kæranda. Engin skrifleg samskipti hafi fundist.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt í vinnumarkaðsúrræði sem henni var gert að sækja. Af gögnum málsins er ekki að sjá að kærandi hafi sett sig í samband við Vinnumálastofnun vegna tölvuvandræða sinna. Að mati úrskurðarnefndarinnar hefði kæranda átt að vera ljóst að nauðsynlegt væri að tilkynna stofnuninni um þau vandræði sem hún var í, enda stóð námskeiðið yfir í nokkra daga.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. desember 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum